Fotbolti.net
30.07.22 - 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Zlatan: Fótboltinn deyr ef ég hætti

Zlatan: Fótboltinn deyr ef ég hætti
Canon

Mynd: EPA

Zlatan Ibrahimovic framherji AC Milan gerði samning við félagið um að spila með því út komandi leiktíð.

Þessi litríki sænski framherji verður 41 árs í október svo það er eðlilegt að fólk spyrji sig hvenær hann mun leggja skóna á hilluna.

Einn aðdáandi hans spurði hann bara beint út og Zlatan svaraði að hætti Zlatan.

„Hvenær hætti ég? Aldrei. Fótboltinn deyr ef ég hætti."

Zlatan hefur leikið með Milan frá árinu 2020 en hann var áður hjá félaginu frá 2010-2012

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.