Fotbolti.net
30.07.26 - 22:00
Víðir Sigurðsson

Víðir Sig: Markametið féll og árangur Vals er sögulegur

Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði öll þrjú mörk Vals í leikjunum tveimur gegn Zrinjski Mostar.

Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði öll þrjú mörk Vals í leikjunum tveimur gegn Zrinjski Mostar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi Hrafn Haraldsson sló í kvöld markamet Hermanns Gunnarssonar hjá Val í Evrópumótum karla þegar Valsmenn gerðu sér lítið fyrir og urðu fyrsta íslenska liðið til að slá andstæðinga frá Bosníu út í einvígi í Evrópukeppni.

Tryggvi jafnaði metið þegar hann skoraði sigurmark Vals í fyrri leiknum á Hlíðarenda fyrir viku síðan, 1-0, og í kvöld skoraði hann bæði mörkin þegar Valur og Zrinjski gerðu jafntefli, 2-2, í seinni leik liðanna í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar.

Valsmenn eru komnir áfram í Evrópukeppni í sjöunda skipti í sögu félagsins og eiga nú fyrir höndum einvígi gegn Nordsjælland frá Danmörku í þriðju umferð keppninnar, tvo næstu fimmtudaga. Það verður í þriðja sinn sem Valsmenn mæta dönsku liði í Evrópukeppni.

Í fyrri tvö skiptin var Bröndby mótherjinn, árið 2006 enduðu leikirnir 0-0 og 3-1, Bröndby í hag, og danska liðið vann mjög sannfærandi sigra, 6-1 og 4-0, þegar félögin mættust aftur árið 2016.

Í greininni má sjá hvaða Valsmenn hafa skorað tvö mörk og fleiri í Evrópukeppni, hverjir eru tíu markahæstu leikmenn íslenskra liða í Evrópukeppni, hvaða félög Valur hefur slegið út og hvernig einvígi liða frá Íslandi og Bosníu hafa farið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.