Fotbolti.net
30.08.02 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð

Ricardo kominn í raðir Man Utd. (staðfest)

Kaup Manchester United á spænska landsliðsmarkmanninum Ricardo Lopez Felipe frá Real Valladolid eru í höfn en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag. Kaupverðið er 1,5 milljón punda á Ricardo sem var með spænska landsliðinu á HM en hann var á bekknum hjá Spánverjunum í öllum leikjum liðssins. Búist er við að hann verði reiðubúinn að fara með Man Utd í leikinn gegn Sunderland á morgun þrátt fyrir að allar líkur séu á að Fabien Barthez verði í byrjunarliðinu og Roy Carrol á bekknum. Ricardo er þrítugur en hann lék með Atletico Madrid á til árssins 1998 þegar hann fór Real Valladolid.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.