Fotbolti.net
30.08.04 - 09:54
Hafliði Breiðfjörð

Earnshaw til WBA (Staðfest)

Earnshaw til WBA (Staðfest)
Canon
WBA hafa gengið frá kaupum á framherjanum Robert Earnshaw frá Cardiff en hann verður dýrasti leikmaður félagsins, keyptur á 3 milljónir punda. Earnshaw gerði þriggja ára samning við félagið með möguleika á ári til viðbótar en hann undirgekkst læknisskoðun í morgun áður en skrifað var undir samninginnn. Gary Megson stjóri WBA hefur verið að eltast við framherja í allt sumar og eftir að ljóst var að ekkert yrði af kaupum á Aruna Dindane eða Sylvain Wiltord snéri hann sér að Earnshaw.
Earnshaw hefur verið besti framherji neðri deildanna í Englandi og staðið sig frábærlega með Cardiff. Charlton og Celtic höfðu einnig sýnt honum áhuga fyrr í sumar.

Kaupverðið gæti farið í 3,625 milljónir punda eftir árangri WBA í deildinni.

Sjá einnig:
Robert Earnshaw
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.