Fotbolti.net
30.08.17 - 12:00
Elvar Geir Magnússon
Skrifar frá: Helsinki

Ari Freyr: Höddi á auðvitað skilið að sýna sig aftur

Auglýsing
Ari á landsliðsæfingunni í gær.

Ari á landsliðsæfingunni í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Þeir eru stórir og sterkir, þetta eru dugnaðarleikmenn,\" segir Ari Freyr Skúlason landsliðsbakvörður fyrir leikinn gegn Finnlandi sem fram fer á laugardaginn.

Ísland er í góðri stöðu í undankeppni HM en þarf að sækja þrjú stig til Tampere um helgina.
„Þetta leggst mjög vel í mig, flestir í hópnum eru að spila (með sínum félagsliðum) og við unnum frábæran sigur í síðasta leik (gegn Króatíu). Við verðum að byggja ofan á það.\"

Við erum saman í þessu
Ari var á bekknum í sigrinum gegn Króatíu en Heimir Hallgrímsson ákvað að velja Hörð Björgvin Magnússon frekar í vinstri bakvörðinn. Hörður skoraði sigurmark leiksins.

„Maður vill alltaf byrja. Höddi kemur inn og stendur sig frábærlega. Hann á auðvitað skilið að sýna sig aftur. Maður er til staðar bæði fyrir hann og fyrir liðið. Við erum allir saman í þessu. Það er bara eitt markmið og það er að komast á HM.\"

Ari segir að menn séu meðvitaðir um að þó sigur hafi unnist í fyrri leiknum gegn Finnlandi eigi liðið að spila betur en það gerði í þeim leik.

„Við vorum ekki nógu góðir og vorum ekki að spila nægilega vel. Við vorum ekki að skapa færin sem við erum vanir að skapa en á einhvern hátt náðum við þremur stigum. Við verðum að gera mun betur í þessum leik,\" segir Ari.

Ekki hræddur við að sparka mönnum í burtu
Það hafa orðið breytingar hjá hans félagsliði, Lokeren í Belgíu. Eftir slæma byrjun var Rúnar Kristinsson rekinn en liðið hefur náð að vinna tvo síðustu leiki.

„Svona er fótboltinn, hann er grimmur. Það er leiðinlegt að missa Rúnar og það allt. Við höfum forseta sem vill fá ákveðna hluti og hann er ekki hræddur við að sparka mönnum í burtu. Ég trúði þessu ekki þegar ég heyrði um brottreksturinn. En nýr þjálfari hefur komið ferskur inn,\" segir Ari en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.