Fotbolti.net
30.09.26 - 08:46
Elvar Geir Magnússon

Þjálfari Búlgaríu sagði upp fyrir ferðalagið til Íslands

Aleksandar Dimitrov.

Aleksandar Dimitrov.

Canon

Mynd: EPA

Eimskip
Ísland og Búlgaría mætast á Laugardalsvelli á laugardag en íslenska liðið komst á topp riðilsins í Þjóðadeildinni með 3-0 útisigrinum gegn Lúxemborg.

Búlgarar eru skyndilega þjálfaralausir nokkrum dögum fyrir leikinn á Íslandi því Aleksandar Dimitrov sagði upp á fréttamannafundi beint eftir markalaust jafntefli gegn Eistlandi í gær.

Undir stjórn Dimitrov vann Búlgaría þrjá leiki, gerði tvö jafntefli og tapaði fimm leikjum. Liðið er með eitt stig í Þjóðadeildarriðlinum eftir tap gegn Lúxemborg í fyrstu umferð.
Langþráður og sannfærandi sigur í Lúxemborg
TENGT EFNI

Langþráður og sannfærandi sigur í Lúxemborg

Búlgarskur fótbolti er að ganga í gegnum mikla lægð og sagði Dimitrov mikilvægt að menn væru ekki að dvelja í fortíðinni heldur þyrftu að horfast á við stöðuna eins og hún er í dag.
Laugardalsvöllur.

Laugardalsvöllur.

Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.