Í gær var greint frá því að egypskur viðskiptajöfur vildi kaupa Burnley. Mohamed El Kashashy heitir sá og er ásamt lögfræðingnum Chris Farnell að undirbúa 200 milljóna punda yfirtökutilboð í Burnley.
„Ég veit jafnmikið og þið vitið," sagði Sean Dyche, stjóri Burnley, á fréttamannafundi í gær.
„Ég hef lesið mismunadi sögur. Þetta er ekki beint í mínum verkahring að pæla í þessu. Ég einbeit mér að liðinu. Þetta er það sem stjórnin sér um og taka ákvörðun. Ég hef engin völd á þessu sviði."
„Ég hef ekki verið viðloðinn neinar umræður og ég veit ekki hvort það sé venjulega gert eða ekki. Ég veit ekki mikið um eignarhaldið en ég sé og heyri alltaf meira af fréttum tengdum eignarhaldinu," sagði Dyche um eigendaskiptin.
Athugasemdir