13.10.26 - 14:12
Kári Snorrason
Pep verður í stúkunni á Etihad - „Þetta er húsið hans“

Frá kveðjustund Pep í vor.

Mynd: EPA

Frá kveðjustund Pep í vor.

Mynd: EPA
Pep Guardiola mun snúa aftur á Etihad völlinn á morgun sem áhorfandi er Man City mætir PSG í Meistaradeildinni.
Guardiola lét af störfum sem stjóri liðsins í sumar og verður þetta í fyrsta sinn sem hann mætir á völlinn síðan hann hætti.
Enzo Maresca, eftirmaður Pep, var spurður út í fyrirhugaða heimsókn Spánverjans á blaðamannafundi liðsins í dag.

„Þetta er góð tilfinning, sérstaklega fyrir hann þar sem þetta hefur verið húsið hans í tíu ár. Þetta er enn húsið hans vegna alls þess sem hann hefur afrekað hér. Þetta er spennandi fyrir alla.“
Mikið hefur gustað um City undanfarnar vikur vegna brota á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar en óvíst er hvort Pep muni ávarpa stuðningsmenn fyrir leikinn á morgun.