Fotbolti.net
30.10.26 - 12:33
Elvar Geir Magnússon

Munum stolið af minnisvarða á Manchesterplatz

Munum stolið af minnisvarða á Manchesterplatz
Canon

Mynd: EPA

Glerstyttu og verðlaunapeningum var stolið úr minnisvarða um þá 23 sem fórust í flugslysinu 1958 í München í Þýskalandi, þar á meðal voru átta leikmenn Manchester United sem fórust.

Rænt var úr sýningarskáp á Manchesterplatz í München, staðnum þar sem flugvélin hrapaði við flugtak eftir að hafa tekið eldsneyti á leiðinni heim úr Evrópuleik í Belgrad.

Lögreglan í München segir við þýska fjölmiðla að glerið hefði verið brotið með því að kasta steini.

„Þeir skilja ekki tjónið sem þeir hafa valdið, Minnisvarðinn hefur valdið fjölskyldum sem misstu ástvini í slysinu huggun," segir Ifty Ahmed, formaður minningarsjóðsins Manchester München. Glerstytta sem var gefin fyrrverandi borgarstjóra München, Dieter Reiter, eru meðal þeirra muna sem voru teknir.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.