30.10.26 - 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gyrðir spáir í 9. umferð ensku úrvalsdeildarinnar

Gyrðir Hrafn Guðbrandsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Xabi Alonso, stjóri Chelsea.

Mynd: EPA

Aron Sig sendir Carrick skilaboð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gyrðir spáir því að Haaland verði í stuði um helgina.

Mynd: EPA

Nicolas Jackson hefur byrjað vel hjá Aston Villa.

Mynd: EPA

Liverpool mætir Aston Villa.

Mynd: EPA

Gyrðir Hrafn Guðbrandsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Líf Joostdóttir van Bemmel, leikmaður Breiðabliks, var með fimma rétta þegar hún spáði í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Núna fengum við Gyrði Hrafn Guðbrandsson, sem átti ótrúlega innkomu í lið Þórs í sumar, til að spá í leikina sem eru í 9. umferð deildarinnar.

TENGT EFNI
Af hverju er bara einn leikur í enska á sunnudaginn?
Chelsea 2 - 0 Man Utd (12:30 á morgun)
Skrapp til Kína með einum harðasta Chelsea manni landsins, honum Leifi Þorsteins (CAD hlaðvarpsstjórnanda) vorum sammála um það að Alonso er ekkert að fara tapa þessum leik. Því miður fyrir vin minn Aron Sig þá heldur þessi martröð ennþá áfram. En honum er svo sem alveg sama hann svífur um á bleiku skýi eftir markametið. Held meira að segja að hann muni senda Carrick persónuleg skilaboð eftir leik með tölfræði um sig úr bestu deildinni og spyrja hvort þeir vilja ekki bara selja Bruno og taka sig!
Bournemouth 2 - 1 Leeds (15:00 á morgun)
Bournemoth er ekki búið að tapa í 5 leikjum í röð! Þeir vinna þennan leik. Ætlaði að segja 2-0 en Mamma Leedsari hló að þessu og sagði að Calvert-Lewin er alltaf að fara skora! Þannig leikurinn endar 2-1 fyrir Bournthmoth!
Brentford 1 - 1 Nottingham Forest (15:00 á morgun)
Þetta verður einfaldlega leiðinlegasti leikur umferðarinnar. Sanngjarnt 1-1 jafntefli og leikur sem enginn mun muna eftir á mánudaginn.
Coventry 0 - 2 Sunderland (15:00 á morgun)
Eftir slaka byrjun hjá Sunderland á tímabilinu þá rífa þeir sig núna í gang og ná að tengja saman tvo sigra í fyrsta sinn á tímabilinu. 0-2
Hull 0 - 0 Ipswich (15:00 á morgun)
Nýliðaslagur! Verður lokaður leikur, bæði lið horfðu á þennan leik fyrir tímabil sem must win leik. En því miður þá endar þessi leikur 0-0. Markmenn liðanna menn leiksins!
Man City 5 - 3 Brighton (15:00 á morgun)
Þetta Brighton project er svo skemmtilegt, spennandi og áhugavert. Ef það er eitthvað lið sem ég væri til í að kaupa hlutabréf í þá væri það Brighton! (Buy low sell high) Tvö skemmtilegustu lið Evrópu að mætast og þetta verður markaleikur! En því miður fyrir Brighton þá mun City vinna þennan leik 5-3! Haaland þrenna og Doku með þrennu í stoðsendingum! Mín spá er að City slái stigametið í ár, sem mun svo reynast algjör lífsbjörg þegar dómurinn verður loksins kveðinn upp og stigin verða tekin af þeim. Þeir ná því rétt svo að halda sér í deildinni!
Tottenham 1 - 0 Crystal Palace (17:30 á morgun)
Kíkti upp í hesthús til pabba til að fá hans innsýn í leikinn. Hann fór með með mig í hestastíuna, rétti mér skóflu og byrjaði að moka skít, eftir vinnuna sagði hann: “Ef þessir pappakassar sinna skítverkunum þá mun Tottenham vinna leikinn og enda tímabilið í Evrópusæti”. Við þessa heimsókn þá get ég ekki annað en giskað að þetta verði alvöru 1-0 iðnaðarsigur fyrir Tottenham.
Aston Villa 3 - 1 Fulham (20:00 á morgun)
Því miður fyrir Fulham menn þá held ég að Arbeloa sé enginn þjálfari og hann verður með þeim fyrstu sem mun taka pokann sinn! Þetta er öruggur sigur Aston Villa! 3-1. Jackson skorar þrennu og tekur svo moonwalk til að fagna!
Liverpool 2 - 0 Arsenal (16:30 á sunnudag)
Stórleikur umferðarinnar! Ég verð í Shanghai að fylgjast með þessari veislu! Ákvað að fara á stúfana hér í Kína og taka púlsinn á fólkinu. Eins og við vitum þá eru Kínverjarnir afar góðir spámenn og láta ekki tilfinningarnar ráða för. En við vorum öll sammála um að þetta væri sigur Liverpool manna! Alexander Isak er búinn að vera sjóðandi og mun hann skora með skoti fyrir utan teig. Svo mun minn maður Jacquet eiga stórleik og halda hreinu og skora svo annað mark til að tryggja þennan sigur!
Newcastle 2 - 2 Everton (20:00 á mánudag)
Þetta verður áhugaverður leikur. Veit ekki afhverju en ég er að fíla nýja þjálfarann hjá Newcastle. Það er góð Aura yfir honum. En þetta Newcastle lið getur unnið alla en líka tapað á móti öllum. Svo erum við með David Moyes hann er ekkert að flækja þetta. Þetta verður gamli vs nýji skólinn. En held að bæði lið labba sátt frá borði eftir góðan 2-2 leik.
Fyrri spámenn:
Aron Valur (9 réttir)
Stefan Ljubicic (6 réttir)
Líf van Bemmel (5 réttir)
Gaui Lýðs (5 réttir)
Dom Ankers (5 réttir)
Gunni Birgis (5 réttir)
Aron Snær (4 réttir)
Hjammi (4 réttir)

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 8 | +11 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 8 | +16 | 16 |
| 4 | Liverpool | 8 | +3 | 15 |
| 5 | Chelsea | 8 | +2 | 13 |
| 6 | Brentford | 8 | +5 | 11 |
| 7 | Leeds | 8 | +3 | 11 |
| 8 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 9 | Aston Villa | 8 | -3 | 11 |
| 10 | Hull City | 8 | +1 | 10 |
| 11 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 12 | Ipswich Town | 8 | -4 | 10 |
| 13 | Bournemouth | 8 | -1 | 9 |
| 14 | Tottenham | 8 | -2 | 9 |
| 15 | Fulham | 8 | -2 | 8 |
| 16 | Man Utd | 8 | -3 | 7 |
| 17 | Crystal Palace | 8 | -10 | 7 |
| 18 | Nott. Forest | 8 | -4 | 6 |
| 19 | Coventry | 8 | -9 | 6 |
| 20 | Sunderland | 8 | -8 | 5 |