Fotbolti.net
30.10.26 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Held að hún verði ekki leikmaður Vals á næsta tímabili"

Margrét Brynja í leik með Val í sumar.

Margrét Brynja í leik með Val í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Margrét Brynja Kristinsdóttir var besti leikmaður Vals í sumar þegar liðið féll úr Bestu deild kvenna.

Það er talið ólíklegt að hún verði áfram á Hlíðarenda þar sem áhugi er á henni úr Bestu deildinni og erlendis. Líklegast þykir að hún fari erlendis.
„Maður hefur heyrt af því að það séu strax búnar að vera þreifingar og liðin séu að sjá með meiðslin, hvenær hún getur komið á reynslu eða hvað sem það er," sagði Arnar Páll Garðarsson í Uppbótartímanum.

„Ég held að hún verði ekki leikmaður Vals á næsta tímabili."

Margrét Brynja meiddist í lokaleik tímabilsins gegn Fram, en það verður fróðlegt að sjá hvað gerist hjá henni.

Uppbótartíminn - Einkunnir og verðlaun fyrir tímabilið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.