Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 30. nóvember 2019 16:11
Ívan Guðjón Baldursson
Guardiola: Goðsagnakenndur leikvangur
Mynd: Getty Images
Josep Guardiola var svekktur eftir 2-2 jafntefli gegn Newcastle fyrr í dag.

Man City komst tvívegis yfir en í bæði skiptin jöfnuðu heimamenn. Jonjo Shelvey gerði jöfnunarmark á 88. mínútu sem var sárt fyrir Englandsmeistarana.

„Við fengum nóg af færum til að vinna þennan leik. Þetta er slæm stund en við þurfum að halda áfram. Á morgun munum við ná okkur aftur upp," sagði Guardiola.

„Ég man eftir leiknum hérna á síðasta tímabili. Það er alltaf erfitt að koma til Newcastle, þetta er goðsagnakenndur leikvangur hér á Englandi.

„Við spiluðum vel í dag en fengum tvö ódýr mörk á okkur sem er svekkjandi."

Athugasemdir
banner
banner
banner