Adolf Daði lærði sína lexíu - „Var bara á tásunum"
Auglýsing

Adolf Daði í leiknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Adolf Daði fagnar markinu sínu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Adolf Daði í leiknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Loksins komu þrjú stig," sagði Adolf Daði Birgisson, leikmaður FH, eftir 1-2 útisigur í Keflavík í Bestu deildinni í kvöld.
„Ég er svo þreyttur að ég get varla komið upp orði. Við erum búnir að vera fínir í mörgum leikjum en úrslitin hafa ekki dottið með okkur. Menn fara í dýpri holu en núna erum við að grafa okkur upp."

Adolf Daði byrjaði á bekknum en kom inn á sem varamaður þegar nokkrar sekúndur voru búnar af leiknum. Arnór Borg Guðjohnsen meiddist og Adolf kom inn af bekknum.
„Ég var bara á tásunum þegar Arnór meiddist. Ég var að laga skóinn minn og var ekkert búinn að hita upp af neinni alvöru. Ég hélt að ég myndi ekki koma inn á því ég er búinn að vera með í lærinu. Svo kallar Jói og ég þurfti að vera klár."
„Þetta er ákveðin lexía, að vera alltaf klár. Það er geggjað að geta komið inn á og hjálpað liðinu," sagði Adolf Daði en hann skoraði fyrra mark FH í leiknum.
Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.