Fotbolti.net
15.06.26 - 10:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Von á viðbrögðum frá Fylki - „Mjög óþægilegt"

Von á viðbrögðum frá Fylki - „Mjög óþægilegt"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

„Þetta er komið í ferli hjá okkur, það er alveg klárt," segir Ragnar Páll Bjarnason, formaður fótboltadeildar Fylkis, aðspurður um yfirlýsingu Gróttu frá því í gærkvöldi.

Grótta fordæmir hegðun hluta stuðningsmanna Fylkis og vill að eitthvað sé aðhafst í málinu.
Grótta fordæmir söngvana í Árbæ - Vilja að málið verði skoðað
TENGT EFNI

Grótta fordæmir söngvana í Árbæ - Vilja að málið verði skoðað

„Ég varð ekki var við þetta sjálfur á leiknum, auðvitað sá ég þessa einstaklinga sem voru að hvetja, en ég gerði mér ekki grein fyrir því þar sem ég var staddur á leiknum hvað væri í gangi, allavega ekki til fulls. Ég gerði mér ekki grein fyrir því að þetta væri svona og ég held að fæstir hafi almennilega áttað á sig. Við erum að taka þetta saman og búa til okkar viðbrögð því þetta er víðs fjarri því sem við viljum standa fyrir og er bara mjög óþægilegt," segir Ragnar.

„Við erum að vinna í því hvernig við svörum þessu og hvað við gerum í framhaldinu. Það er von á einhverju frá okkur fljótlega um þetta mál," bætir formaðurinn við.

Úr yfirlýsingu Gróttu
Meðan á leiknum stóð veittist hópur stuðningsmanna Fylkis ítrekað að leikmanni Gróttu og aðstandendum hans með grófum og óviðurkvæmilegum ummælum og athugasemdum. Umræddur hópur stuðningsmanna hafði meðal annars í frammi kynferðislegar athugasemdir sem tengdust fjölskyldumeðlimum leikmannsins.

Auk þess varð unnusta leikmannsins fyrir aðkasti stuðningsmanna á meðan á leik stóð og aftur í verslun í nágrenninu löngu eftir að leiknum var lokið.
Von á viðbrögðum frá Fylki - „Mjög óþægilegt"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.