Þættir verða gerðir um næsta tímabil Man Utd

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fótboltaáhugafólk mun fá innsýn bak við tjöldin hjá Manchester United en Amazon Prime mun gera þætti um næsta tímabil liðsins. Þættirnir verða hluti af All or Nothing seríunum.
United er fjórða enska úrvalsdeildarfélagið sem semur við Amazon en áður höfðu Arsenal, Tottenham og Manchester City gert það.

Sjónvarpsfólkið fær aðgang bak við tjöldin, meðal annars á æfingasvæðinu og í klefanum. Upptökur munu hefjast á undirbúningstímabilinu.
All or Nothing fór í gang 2016 og þá var fylgt eftir NFL-liðinu Arizona Cardinals.
Þættir um síðustu tvö tímabil Pep Guardiola við stjórnvölinn hjá Manchester City fara í loftið bráðlega hjá Amazon. Um er að ræða fjóra þætti.