Fotbolti.net
15.06.26 - 12:12
Kári Snorrason

Jón Þór ræðir endurkomuna í Garðabæinn - „Auðvitað þung helgi fyrir hópinn“

Jón Þór Hauksson er nýr þjálfari Stjörnunnar.

Jón Þór Hauksson er nýr þjálfari Stjörnunnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór Hauksson skrifaði undir tveggja ára samning við Stjörnuna síðastliðinn laugardag eftir að liðið lét Jökul Elísabetarson fara á föstudagskvöld.

Gengi Stjörnunnar hefur verið langt undir væntingum í upphafi tímabils en liðið er í 9. sæti Bestu deildarinnar með tíu stig. Þá féllu Garðbæingar jafnframt úr leik í Mjólkurbikarnum í síðustu viku eftir að hafa tapað gegn Aftureldingu í 8-liða úrslitum.

Fótbolti.net sló á þráðinn til nýráðins þjálfara Stjörnunnar og ræddi við hann um verkefnið í Garðabæ.
Jón Þór skrifaði undir tveggja ára samning hjá Stjörnunni
TENGT EFNI

Jón Þór skrifaði undir tveggja ára samning hjá Stjörnunni

Enginn aðdragandi
„Þetta gekk mjög hratt fyrir sig. Það var nánast enginn aðdragandi. Þetta vannst hratt og vel,“ segir Jón Þór og var í kjölfarið spurður hvort að hann hafi þurft mikla sannfæringu.

„Nei í raun og veru ekki. Það þurfti að hafa hraðar hendur, það var stutt í næsta leik og Stjörnuna þekki ég ágætlega. Ég hef bæði fylgst með boltanum í sumar og þekki umhverfið ágætlega eftir að hafa starfað hérna fyrir reyndar átta árum.“

„Ég á mjög góðar minningar héðan og átti skemmtilegan tíma hér áður. Þekki mikið af góðu fólki sem tengist klúbbnum og eignaðist góða vini. Ég á góðar minningar úr Stjörnunni þannig þetta var afgreitt fljótt og vel,“
segir Jón en hann var aðstoðarþjálfari Stjörnunnar tímabilið 2018 og vann m.a. Mjólkurbikarinn með liðinu.

Komust hratt að samkomulagi
Jón Þór var á samningi hjá Vestra en félagið þurfti að hafa þjálfara með UEFA Pro þjálfaragráðu vegna þátttöku liðsins í Evrópuleikjum í sumar.

Jón segir félögin hafa komist fljótt að samkomulagi. „Um leið og félögin náðu samkomulagi um það að þá unnust hlutirnir hratt. Það gekk vel.“

Vestri hefur tvo mánuði til að ráða mann með UEFA Pro gráðu
TENGT EFNI

Vestri hefur tvo mánuði til að ráða mann með UEFA Pro gráðu



Röð og regla í Garðabæ
„Ég stjórnaði fyrstu æfingunni í gær og svo er æfing síðar í dag. Undirbúningurinn er stuttur og snarpur. Það hjálpar auðvitað til að liðið er gott, vel þjálfað, skipulagt og að hér sé allt í röð og reglu.“

Þú ert semsagt að taka við góðu búi?
„Ég er að taka við virkilega góðu búi. Jökull hefur gert virkilega góða hluti hérna. Unnið gríðarlega gott starf. Hann á virðingu skilið fyrir það og ég ber mikla virðingu fyrir því sem Jökull hefur gert hér. Það er augljóst á fyrstu dögunum að ég sé að taka við virkilega góðu búi,“ segir Jón Þór.

Ærið verkefni
Eins og fyrr sagði þá hefur gengi Stjörnunnar verið undir væntingum. Jón Þór var spurður út í þær áherslur sem hann hyggst koma með.

„Það þarf auðvitað að snúa genginu við. Það er alltaf þannig að þegar gengið hefur ekki verið samkvæmt væntingum þá eru ákveðnir hlutir sem er ábótavant. Fyrst um sinn þá þurfum við að einbeita okkur að því að snúa þeim hlutum við. Áherslurnar fyrstu dagana lúta að því að koma mönnum á fætur, þétta umhverfið og fá hlutina til að tikka,“ segir Jón.

„Þetta er ærið verkefni. Blikarnir hafa verið að spila virkilega vel upp á síðkastið. Við erum að fá þá í fangið á siglingu. Þegar maður mætir Breiðabliki er það alltaf ærið verkefni. Fyrst og fremst þurfum við að einbeita okkur að okkar hlutum og búa þannig um hlutina að við séum tilbúnir að takast á við þá áskorun.“
Endurstilling í Garðabænum og leit Blika að stöðugleikanum
TENGT EFNI

Endurstilling í Garðabænum og leit Blika að stöðugleikanum



Ekkert egóflipp
Jökull Elísabetarson hafði verið stýrt liðinu í rúm þrjú ár en hann var aðstoðarmaður Ágústs Gylfason í tæp tvö ár þar áður.

Mun það taka tíma að koma þínu handbragði á liðið?
„Ég held að það snúist ekkert endilega um að koma mínu handbragði á hlutina. Ég er ekkert að koma inn í hlutina í einhverju egóflippi eða slíku. Þetta snýst um það markmið að koma Stjörnunni í það flot sem það á heima. Það þurfa allir að leggjast á árarnar í því. Vinna hratt og vel að koma liðinu upp töfluna,“ segir Jón.

Hvert er stefnan sett?
„Stefnan er sett á að taka góða æfingu á eftir fyrir leikinn gegn Breiðabliki á morgun. Stefnan er sett á að það verði allir klárir í slaginn á morgun og gera allt sem þeir geta til að ná góðum úrslitum á morgun,“ segir Jón.

Þung helgi fyrir hópinn
Lykilmenn Stjörnunnar hafa verið að glíma við meiðsli, Jón segist þó ekki geta gefið góða skýrslu um meiðslalistann þar sem hann er enn að koma sér inn í hlutina.

„Í raun og veru ekki, ég er enn að reyna ná utan um hlutina. Það eru einhverjir að koma til baka og lengra í einhverja. Ekkert sem ég er alveg kominn með á hreint,“ segir Jón og heldur áfram.

„Að öðru leyti er staðan á hópnum fín, auðvitað var þetta þung helgi fyrir leikmannahópinn. Tengjast Jökli vel og stór hluti af hópnum hefur unnið náið með Jökli í nokkur ár. Menn sjá eftir honum, það eru alltaf erfiðar tilfinningar sem fylgja svona hlutum.“

„Að öðru leyti var góð og jákvæð orka yfir hópnum á æfingu í gær, allir klárir í slaginn á morgun,“
segir Jón Þór að lokum.
Var aðstoðarmaður Rúnars Páls í Stjörnunni 2018.

Var aðstoðarmaður Rúnars Páls í Stjörnunni 2018.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Töpuðu gegn Aftureldingu í Mjólkurbikarnum í síðustu viku.

Töpuðu gegn Aftureldingu í Mjólkurbikarnum í síðustu viku.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Jökull Elísabetarson var látinn fara sem þjálfari Stjörnunnar á föstudag.

Jökull Elísabetarson var látinn fara sem þjálfari Stjörnunnar á föstudag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hellir mjólk yfir Rúnar Pál eftir að hafa unnið Mjólkurbikarinn með Stjörnunni 2018.

Hellir mjólk yfir Rúnar Pál eftir að hafa unnið Mjólkurbikarinn með Stjörnunni 2018.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í níunda sæti.

Í níunda sæti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan og Vestri komust hratt að samkomulagi.

Stjarnan og Vestri komust hratt að samkomulagi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.