Fotbolti.net
15.06.26 - 13:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Óskar Hrafn: Amin Cosic leysti fótboltagátuna

Hefur verið frábær fyrir KR á tímabilinu og skapað urmul af færum.

Hefur verið frábær fyrir KR á tímabilinu og skapað urmul af færum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Amin Cosic verður að öllum líkindum orðinn leikmaður erlends félags í næsta mánuði. KR hefur fengið tilboð í hann erlendis frá og er hann sterklega orðaður við norsku meistarana í Viking.

Fótboli.net ræddi við þjálfara liðsins, Óskar Hrafn Þorvaldsson, í dag.
Tímaspursmál hvenær Amin fer út - Sá dýrasti í sögunni?
TENGT EFNI

Tímaspursmál hvenær Amin fer út - Sá dýrasti í sögunni?

Líður þér eins og það sé einungis tímaspursmál þangað til hann fer út?

„Já, mér líður þannig, ég verð að vera heiðarlegur með það. Mér líður eins og það sé ekki langt í það að við þurfum að læra að lifa án hans yndislegu nærveru. Ég held það sé fátt sem getur komið í veg fyrir það."

Lítur þú svo á að leikirnir sem hann á eftir með KR séu taldir á fingrum annarrar handar?

„Ég yrði mjög hissa á því ef það gerist ekkert í næsta glugga, ég held það sé ekkert leyndarmál."

Hvernig metur þú hans framfarir frá því að hann kom í KR frá Njarðvík?

„Þær eru auðvitað gríðarlegar. Þegar við sækjum hann er hann ungur maður með mikla hæfileika og færni í að vinna stöðuna einn á móti einum - hafði lítið spáð í varnarleik og var kærulaus eins og margra unga manna er siður. En á einum vetri hefur hann orðið að karlmanni, þyngdist um níu kíló af vöðvum, farinn að spila vörn og einbeiting á æfingum og í leikjum hefur vaxið ótrúlega. Ákvarðanataka inn í leikjunum; hvernig hann les það þegar hann er tvöfaldaður og slíkt – hann hefur kannski tekið enn meiri framförum þar heldur en líkamlega."

„Langstærsti hlutinn liggur hjá honum sjálfum, hann er búinn að læra og leggja á sig mikla vinnu. Hann breytti um hugarfar og hefur sjálfur farið út í það í viðtölum hvaða hugarfar hann kom með í KR og hvernig hugarfarið hefur breyst. Það er langstærsti þátturinn í þessu þegar leikmenn fatta og skilja hvað það sé sem gerir þá góða; af hverju þeir séu góðir og af hverju þeir taka framförum. Þá gerast yfirleitt mjög góðir hlutir. Hann er dæmi um þannig leikmann. Hann leysti gátuna, sína eigin fótboltagátu ef það er hægt að orða það þannig: Hvernig get ég orðið eins góður og ég mögulega get? Já, ég þarf að gera þetta, þetta og þetta. Hann bara fattaði það og það er langstærsti þátturinn í þessu."

„Svo erum við hinir sem stundum fyrir utan og reynum að hjálpa honum; styðja hann og gefa honum tól til þess að takast á við þetta. Það er búið að vera frábært að fylgjast með hvernig hann hefur vaxið,"
segir Óskar.
Hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp eitt í Bestu deildinni.

Hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp eitt í Bestu deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er langstærsti þátturinn í þessu þegar leikmenn fatta og skilja hvað það sé sem gerir þá góða

Það er langstærsti þátturinn í þessu þegar leikmenn fatta og skilja hvað það sé sem gerir þá góða

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.