Vatnspásurnar á HM umdeildar

Sebastian Beccacece þjálfari Ekvador ræðir við menn sína.

Mynd: EPA

Ákveðið var að taka vatnspásur í öllum 104 leikjunum á HM sem fram fer í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Pásurnar eru teknar eftir um 22 mínútna leik í hvorum hálfleik.
„Ég er ekki hrifinn af þessum pásum, ekki nema aðstæður séu þess eðlis. Mér finnst óþarfi að hafa þetta í öllum leikjum og þegar aðstæður eru góðar," segir Mauricio Pochettino, þjálfari Bandaríkjanna.

Þjálfararnir hafa nýtt pásurnar sem taktísk leikhlé, eins og þekkist í körfubolta og handbolta.
Carlo Ancelotti, þjálfari Brasilíu, notaði pásu í leik gegn Marokkó til að gera taktískar breytingar eftir að lið hans lenti undir. Stuttu eftir pásuna jafnaði Brasilía.
„Það er hægt að nota þetta hlé til að gera breytingar og koma leiðbeiningum til leikmanna. Það er hægt að nýta það vel," sagði Ancelotti.
Emma Hayes, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna í kvennaflokki, segir að pásurnar geti eyðilagt taktinn fyrir liðið sem er með yfirhöndina í leiknum.
Margar sjónvarpsrétthafar fagna þá þessum pásum en bandaríska sjónvarpsstöðin Fox er meðal stöðva sem hafa notað þær til að koma að auglýsingum.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!