Yfirlýsing Fylkis: Félagið mun taka hart á þessu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir hefur gefið út yfirlýsingu í kjölfar yfirlýsingar Gróttu frá því í gær. Í sinni yfirlýsingu Gróttu fordæmdi félagið söngva og hegðun hluta stuðningsmanna Fylkis í kringum bikarleik liðanna á laugardag og vildi að eitthvað yrði gert í málinu.
Fylkir tekur fram að hegðun hluta stuðningsmanna sé víðs fjarri því sem félagið vill standa fyrir, hún eigi ekkert skylt við íþróttir eða almennt í lífinu. Félagið biður alla þá sem urðu fyrir þessari óásættanlegu hegðun afsökunar og segist ætla taka hart á þessu.

TENGT EFNI
Grótta fordæmir söngvana í Árbæ - Vilja að málið verði skoðað
Yfirlýsing frá Knattspyrnudeild Fylkis
Í kjölfar leiks Fylkis og Gróttu í 8 liða úrslitum Mjólkurbikars karla síðasta laugardag vill Fylkir taka það skýrt fram, að sú hegðun sem hluti stuðningsmanna sýndi af sér þar er víðs fjarri því sem Fylkir vill standa fyrir. Sú hegðun sem þar átti sér stað á ekkert skylt við íþróttir eða bara almennt í lífinu. Félagið mun taka hart á þessu og gera það sem það getur til að álíka hlutir endurtaki sig ekki.
Knattspyrnudeildin vill einnig biðja alla þá sem urðu fyrir þessari óásættanlegu hegðun afsökunar.
Það er Fylki mikið kappsmál að hafa alla umgjörð í lagi og að allir telji sig örugga og velkomna á félagssvæði okkar. Einkunnarorð okkar eru Gleði – Virðing – Metnaður. Þau verða höfð að leiðarljósi við meðferð þessa máls. Þessi yfirlýsing er alls ekki það síðasta sem Knattspyrnudeild Fylkis mun aðhafast í þessu máli.
Ragnar Páll Bjarnason
Formaður Knattspyrnudeildar Fylk