Fyrirliði KR úlnliðsbrotnaði á báðum höndum í Fjarðabyggðarhöllinni

Var flutt með sjúkrabíl á sjúkrahúsið í Norðfirði.

Mynd: KR

Makayla Soll, fyrirliði KR, úlnliðsbrotnaði á báðum höndum í leik liðsins gegn FHL í Fjarðarbyggðarhöllinni í gær.
Atvikið gerðist undir lok fyrri hálfleiks en þá skall Makayla við vegginn eftir baráttu við Alexis Simone Wright sem var í kjölfarið rekin af velli.

TENGT EFNI
Lengjudeild kvenna: Fimmti sigur KR - Sá rautt fyrir að hrinda fyrirliðanum á vegg
Afar stutt er frá leikvelli og í steypta veggi Fjarðarbyggðarhallarinnar. Makayla skall á miklum hraða í vegginn en hún náði að setja hendurnar fyrir sig með þeim afleiðingum að úlnliðsbrotna á báðum höndum. Samkvæmt sjónarvotti mátti litlu mátti muna að verr færi.
Leikurinn var stopp í rúmar tuttugu mínútur á meðan hugað var að Makaylu, hún var síðar flutt með sjúkrabíl á sjúkrahúsið í Norðfirði.
Í tilkynningu KR kemur fram að Makayla muni vera frá í nokkrar vikur. Hún er stödd í Reykjavík og mun gangast undir frekari skoðanir í dag.