Maður dagsins á HM - Fagnaði ekki frábæru marki

Yasin Ayari hefði getað spilað fyrir Túnis og Marokkó en valdi Svíþjóð.

Mynd: EPA

Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Svíar fóru af stað með flugeldasýningu og unnu 5-1 sigur gegn Túnis. Yasin Ayari, leikmaður Brighton skoraði fyrsta og síðasta mark leiksins fyrir Svía.
Hann kom liðinu yfir með frábæru marki sem var aðeins annað landsliðsmark hans. Hann varð um leið yngsti markaskorari Svía á HM síðan Tomas Brolin skoraði. En athygli vakti að hann fagnaði ekki markinu.

TENGT EFNI
HM: Isak og Gyökeres skoruðu í stórsigri Svía
Ayari er 22 ára og hefði getað spilað fyrir Túnis á mótinu þar sem faðir hans fæddist í landinu. Af virðingu við Túnis fagnaði Ayari því ekki.
Hann fagnaði hinsvegar eftir að hafa skorað seinna mark sitt með svipuðu skoti í lok leiksins.
Ayari, sem fæddist sjálfur í Svíþjóð og ákvað að leika fyrir þjóðina, hefði líka getað spilað fyrir Marokkó en þar fæddist móðir hans.
„Sonur minn vildi spila fyrir Túnis en ég sagði honum að spila frekar fyrir Svíþjóð. Það er landið sem tók svo vel á móti okkur og hjálpaði honum að þróast. Ég sagði að það væri skylda hans að gefa til baka," sagði Azzouz, faðir Ayari, við Aftonbladet á sínum tíma.

« Je n’ai pas fêté mon but parce que j’aime beaucoup ce pays.. » Yassine Ayari #sweden #tunisia #fifaworldcup pic.twitter.com/n9VWxp3IDG
— ETTACHKILA (@EttachkilaTN) June 15, 2026