Fotbolti.net
14.06.26 - 23:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stjarnan kannaði aðra kosti

Jón Þór er tekinn við Stjörnunni

Jón Þór er tekinn við Stjörnunni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan tilkynnti í gærmorgun að Jón Þór Hauksson væri tekinn við sem þjálfari karlaliðs félagsins en hann tekur við af Jökli Elísabetarsyni sem var látinn fara á föstudag.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net kannaði Stjarnan aðra kosti áður en samið var við Jón Þór.

Heyrst hefur af því að Stjarnan reyndi við Heimi Guðjónsson þjálfara Fylkis og aðstoðarlandslisþjálfarann Davíð Snorra Jónasson.
Jón Þór tekur við Stjörnunni (Staðfest)
TENGT EFNI

Jón Þór tekur við Stjörnunni (Staðfest)

Jón Þór kemur til félagsins frá Vestra þar sem hann var hluti af þjálfarateyminu.

Bæði hann og Davíð Snorri þekkja vel til í Garðabænum og Heimir er margfaldur Íslandsmeistari. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa aðilar innan Stjörnunnar lengi rennt hýru auga til Davíðs Snorra en hann hefur starfað hjá KSÍ síðustu ár.

Heimir var spurður út í Stjörnuna eftir sigur Fylkis gegn Gróttu í Mjólkurbikarnum í gær. Settu þeir sig í samband við þig? „Nei, þeir gerðu það ekki," sagði Heimir einfaldlega.

Stjarnan situr í 9. sæti Bestu deildarinnar með tíu stig eftir tíu leiki. Liðið datt út úr Mjólkurbikarnum á miðvikudag og framundan er leikur gegn Breiðabliki á þriðjudag.
Davíð Snorri var í þjálfarateymi Stjörnunnar fyrir tæpum áratug síðan.

Davíð Snorri var í þjálfarateymi Stjörnunnar fyrir tæpum áratug síðan.

Canon

Mynd: Raggi Óla

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.16+4243
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Valur16-619
6Keflavík16-819
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.