Fotbolti.net
14.06.26 - 23:45
Ívan Guðjón Baldursson

Grótta fordæmir söngvana í Árbæ - Vilja að málið verði skoðað

Grótta fordæmir söngvana í Árbæ - Vilja að málið verði skoðað
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mjólkurbikarinn
Grótta heimsótti Fylki í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í gær þar sem Fylkir vann eftir framlengdan leik í Árbænum.
Seltirningar eru búnir að gefa út yfirlýsingu þar sem þeir hrósa Fylki fyrir umgjörðina í kringum leikinn og óska liðinu áframhaldandi góðs gengis í bikarkeppninni, en fordæma hegðun hluta stuðningsmanna liðsins og vilja að eitthvað sé aðhafst í málinu.

„Meðan á leiknum stóð veittist hópur stuðningsmanna Fylkis ítrekað að leikmanni Gróttu og aðstandendum hans með grófum og óviðurkvæmilegum ummælum og athugasemdum. Umræddur hópur stuðningsmanna hafði meðal annars í frammi kynferðislegar athugasemdir sem tengdust fjölskyldumeðlimum leikmannsins," segir meðal annars í yfirlýsingu frá Gróttu.

„Auk þess varð unnusta leikmannsins fyrir aðkasti stuðningsmanna á meðan á leik stóð og aftur í verslun í nágrenninu löngu eftir að leiknum var lokið."

Talið er að umræddur leikmaður sé Tristan Freyr Ingólfsson sem skoraði fyrsta mark leiksins.

Tristan - Það eru hlutir sagðir uppí stúku sem eru ógeðslegir
TENGT EFNI

Tristan - Það eru hlutir sagðir uppí stúku sem eru ógeðslegir



Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu á RÚV og var lýsanda leiksins misboðið. Hann gagnrýndi meðal annars notkun áhorfenda á gjallarhorni sem þeir notuðu til að hreyta ódæðisorðum í Tristan og fjölskyldu hans.

Unnusta Tristans, Hekla Sif, er vinsæl á samfélagsmiðlinum TikTok og opnaði sig varðandi baráttu við átröskun í fyrra.

„Slíkar árásir eins og leikmaður Gróttu og fjölskylda hans urðu fyrir á leiknum í gær eiga ekkert erindi í íslenskri knattspyrnu. Stjórn knattspyrnudeildar Gróttu fordæmir hegðun og framkomu þessa hóps stuðningsmanna Fylkis og væntir þess að málið verði tekið til skoðunar," segir að lokum í yfirlýsingu Seltirninga.

Grótta fordæmir söngvana í Árbæ - Vilja að málið verði skoðað
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Grótta fordæmir söngvana í Árbæ - Vilja að málið verði skoðað
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.