Henderson á erfitt með að lesa það sem er skrifað um Bellingham

Jordan Henderson og Jude Bellingham.

Mynd: EPA

Jude Bellingham.

Mynd: EPA

Jordan Henderson og Jude Bellingham.

Mynd: EPA
Englendingar hefja leik á HM á miðvikudag þegar þeir mæta Króötum. Eitt helsta umræðuefni sparkspekinga er hvort Jude Bellingham eigi að byrja í 'tíunni' eða hvort Morgan Rogers eigi að vera þar.
Bellingham hefur fengið talsverða gagnrýni fyrir frammistöðu sína með enska landsliðinu og hefur sagt að sér finnist eins og hann hafi verið gerður að ákveðnum blóraböggli á EM fyrir tveimur árum.
Jordan Henderson segir að sér finnist erfitt að lesa suma þá gagnrýni sem Bellingham hefur fengið.

„Það er magnað hvernig hann hefur þroskast og þróast sem leikmaður og manneskja síðan hann lék sinn fyrsta landsleik," segir Henderson.
Henderson var valinn í enska landsliðshópinn vegna leiðtogahæfileika sinna en samband hans og Bellingham er sterkt.
„Fólk gleymir því stundum hvað hann er enn ungur (hann er 22 ára). Ég get eiginlega ekki hrósað honum nægilega mikið. Það er stundum erfitt að lesa það sem er skrifað um hann í fjölmiðlum. Ég veit hversu mikil áhrif hann hefur á liðið og hversu öflugur liðsfélagi hann er utan vallar."
„Hann er með ákveðinn X-faktor og gefur okkur mikið. Hann á stór augnablik á ferlinum og er maður stóru leikjanna. Hann er með reynslu frá stórum mótum og er okkur gríðarlega mikilvægur. Við vitum hvað hann hefur fram að færa og það skiptir mestu máli."

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!