Fotbolti.net
30.11.19 - 16:02
Ívan Guðjón Baldursson

Steve Bruce: Höldum áfram að vona það besta

Steve Bruce: Höldum áfram að vona það besta
Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle náði í stig gegn Manchester City í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Englandsmeistararnir komust yfir í fyrri hálfleik en heimamenn jöfnuðu. Kevin De Bruyne skoraði svo á 82. mínútu og tókst Jonjo Shelvey að jafna sex mínútum síðar.

„Þegar maður mætir stóru strákunum er alltaf gott að ná í stig. Við mættum ótrúlega sterku liði í dag og ég er stoltur af strákunum fyrir að hafa náð í stig," sagði Bruce að leikslokum.

„,Við þurftum stóra frammistöðu frá markverðinum og hún skilaði sér. Strákarnir í sókninni eru að spila vel þó þeir séu ekki að skora. Þeir eru alltaf hættulegir.

„Þegar maður tapar er alltaf hægt að skoða hvað getur farið betur en við erum búnir að vera góðir í síðustu 5 eða 6 leikjum, að undanskildri ferðinni til Villa Park.

„Við höldum áfram að skrapa saman stigum og vona það besta. Það er enginn tími til að sofa því við eigum leiki á fimmtudag og sunnudag."


Newcastle er með 16 stig eftir 14 umferðir. Man City er með 29 stig.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Aston Villa9-312
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.