Jæja, þá er það frágengið. Jonathan Woodgate er búinn að skrifa undir samninginn við Newcastle og fer væntanlega ekki í liðið um helgina þar sem hann er meiddur. Hér að ofan má sjá mynd af kappanum með búninginn en hann mun leika númer 27. Woodgate sagði þetta í dag. ,,Ég er hæstánægður. Það var gaman hjá Leeds og ég eignaðist marga vini og það er leiðinlegt að þurfa að fara en að fá að spila fyrir framan meira en 50 þúsund stuðningsmenn í hverri viku verður frábært. Mér var ekki ýtt út hjá Leeds. Peter Ridsdale stjórnarformaður varð að gera þetta en hann er aðdáunarverður maður sem stóð með mér í gegnum allt."