31.01.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Higginbotham samdi við Southampton.(Staðfest)
Danny Higginbotham varnarmaður Derby County gekk í dag til liðs við Southampton. Southampton keypti Higginbotham á 1,5 milljónir punda en kappinn, sem er 24 ára gamall átti 18 mánuði eftir af samningi sínum við félagið.
