31.01.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaður Real Madrid til Leeds. (Staðfest)
Leedsarar nældu sér í Raul Bravo varnarmann Real Madrid í dag á láni til loka tímabilssins. Talsmenn spænska liðssins sögðu í kvöld að Leeds muni borga laun Bravo en muni ekki eiga kost á að kaupa hann að samningnum loknum. Bravo er 21.árs uppalinn leikmaður Real Madrid, hann hefur leikið 5 unglingalandsleiki fyrir Spán.
