31.01.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Michael Ricketts til Middlesbrough. (Staðfest)
Middlesbrough náði rétt fyrir lokun félagsskiptamarkaðssins að ganga frá kaupum á Michael Ricketts framherja Bolton Wanderers. Kaupin voru frágengin klukkan 23:30 eða aðeins hálftíma áður en félagsskiptaglugganum lokaði. Kaupverð er 3,5 milljónir punda en Boro barðist við Tottenham um að ná Ricketts.
