Fotbolti.net
31.01.23 - 11:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Palace spyrst fyrir um Lokonga

Palace spyrst fyrir um Lokonga
Canon

Mynd: EPA

Crystal Palace er samkvæmt heimildum Daily Mail í viðræðum við Arsenal um möguleikann á því að fá Albert Sambi Lokonga á láni út tímabilið.

Lokonga er 23 ára miðjumaður sem hefur ekki verið í stóru hlutverki á tímabilinu. Hann hefur verið varamaður fyrir þá Thomas Partey og Granit Xhaka.
Hann hefur ekkert komið við sögu í úrvalsdeildinni frá 3-1 sigrinum gegn Tottenham þann 1. október.

Með komu Jorginho til Arsenal er líklegra að Lokonga megi halda á önnur mið. Mónakó hefur einnig sýnt Belganum áhuga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.