Fotbolti.net
31.07.04 - 07:08
Hafliði Breiðfjörð

Camara til Celtic á metfé (Staðfest)

Camara til Celtic á metfé (Staðfest)
Canon
Glasgow Celtic gengu í gær loksins frá samningi við senegalska framherjann Henri Camara frá Wolves í samningi sem er verðmætasti lánssamningur Bretlandseyja. Camara sem er 27 ára gamall er fyrsti leikmaðurinn sem gengur í raðir Celtic í sumar og mun líklega vera keyptur til að taka stöðu Henrik Larsson sem fór til Barcelona.
Ensku blöðin telja Celtic hafa greitt Wolves 1,7 milljónir punda til að fá Camara að láni næsta árið með möguleika á að kaupa hann í kjölfarið.

Martin O´Neill stjóri Celtic sagði: ,,Ég er mjög ánægður með að hafa fengið Henri Camara um borð. Hann er góð viðbót í hópinn og ef vel gengur hjá honum höfum við möguleika á að kaupa hann í lok leiktíðarinnar."

Camara var keyptur til Wolves á 1,5 milljón punda frá Sedan í Frakklandi í ágúst í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.