31.07.04 - 11:45
Hafliði Breiðfjörð
Sullivan til Leeds (Staðfest)




Neil Sullivan gekk í gærkvöld í raðir Leeds United frá Chelsea. Sullivan hafði komið til Chelsea í ágúst í fyrra frá Tottenham og lék 7 sinnum í byrjunarliði og kom einu sinni inná sem varamaður. Hann hélt hreinu í fjórum af þessum leikjum.
Hjá Leeds mun hann berjast um byrjunarliðssæti við hinn unga Scott Carson en Paul Robinson sem varði mark Leeds í fyrra er farinn til Tottenham. Carsson átti stórleik í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í fyrra og mun væntanlega veita Sullivan harða samkeppni.
