31.08.04 - 05:47
Elvar Geir Magnússon
Nilmar til Lyon (Staðfest)




Frönsku meistararnir í Olympique Lyon hafa keypt brasilíska sóknarmanninn Nilmar frá SC Internacional. Þessi 20 ára leikmaður var hluti af brasilíska hópnum sem varð heimsmeistari ungmenna 2003. Hann hefur skrifað undir fimm ára samning eftir að hafa staðist læknisskoðun og er framtíðarleikmaður.
Nilmar mun líklega fá tækifæri strax í sóknarlínu Lyon þar sem aðalsóknarmaður þeirra, Giovane Elber, er á meiðslalistanum. Vörumerki Nilmar er hraðinn en um er að ræða verulega snöggan leikmann sem talið er að henti vel í evrópskan fótbolta. Líklegt er að leikmenn Manchester United fái að kynnast honum því Lyon og United eru í sama riðli í Meistaradeildinni.
