31.08.04 - 17:04
Magnús Már Einarsson
Contra til WBA (Staðfest)




WBA hefur fengið rúmenska hægri bakvörðinn Cosmin Contra að láni frá spænska liðinu Atletico Madrid út þetta tímabil. Hinn 28 ára gamli Contra kom til Atletico fyrir fimm milljónir punda í september árið 2002 en hefur átt við meiðsli að stríða á ökkla og ekki fundið sig í liðið Atletico. WBA mun borga ákveðna upphæð fyrir hvern leik sem að Contra leikur í vetur en kappinn sem að er fyrrum leikmaður Alavés og AC Milan á 43 leiki að baki fyrir rúmenska landsliðið.
