Fotbolti.net
31.08.04 - 19:29

Wayne Rooney til Man. Utd (Staðfest)

Rooney fékk treyju númer 8

Rooney fékk treyju númer 8

Canon
Manchester United hafa loksins gengið frá kaupunum á ungstirninu Wayne Rooney frá Everton. Kaupin gætu verið um 27 milljón punda virði en kaupverðið sjálft er 20 milljonir punda. Hins vegar gæti Everton fengið 7 milljónir í viðbót en það fer eftir leikjafjölda og árangri Rooney með liðinu.
Rooney skrifaði undir sex ára samning og sagði þetta nú rétt áðan: "Ég er mjög spenntur yfir því að ganga til liðs við klúbb eins og Manchester United. Mér líður eins og ég geti bætt ferilinn minn hér."

Sir Alex Ferguson var einnig í skýjunum: "Ég er mjög spenntur. Ég held að við höfum fengið besta unglinginn sem sést hefur á landinu í 30 ár. Allir eru í skýjunum yfir kaupunum."

Everton fá helminginn af 20 milljónunum núna en hinn helminginn þann 1. ágúst á næsta ári. Þeir fásvo 3 milljónir í viðbót ef Rooney er ennþá leikmaður United þann 30 júní árið 2007.

Fleiri greiðslurm gætu svo komið ef hann endurnýjar samninginn sinn og einnig eftir fjölda landsleikja sem hann spilar. Þá gæti umboðsskirfstofa Rooney, Pro-Active Sports Management, fengið 1,5 milljónir punda en það fer eftir hollustu Rooney við United.

Þá er semsagt sögunni endalausu um Wayne Rooney lokið. Hann er kominn til Manchester United sem gleður eflaust margarn stuðningsmann Rauðu Djöflanna enda einn heitasti knattspyrnumaður Evrópu þessa dagana.

Sjá einnig:
Moyes viss um að Rooney verði áfram
Newcastle með 20 milljón punda boð í Rooney
Newcastle býður 22 milljónir punda í Rooney
Manchester United býður í Wayne Rooney
Moyes um Rooney og orðrómana
Man. Utd býður hærra í Wayne Rooney
Robson rekinn frá Newcastle - Rooney til Man. Utd?
Rooney mætir í læknisskoðun hjá....
Manchester United staðfestir kaupin á Wayne Rooney
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.