31.08.04 - 19:37
Elvar Geir Magnússon
Di Natale til Udinese (Staðfest)




Udinese hefur fest kaup á ítalska sóknarmanninum Antonio Di Natale frá Empoli sem féll úr Seríu-A síðasta tímabil. Di Natale er 26 ára ítalskur leikmaður og á fjóra landsleiki að baki. Di Natale er ekki eini leikmaðurinn sem Udinese keypti frá Empoli því varnarmennirnir Manuel Belleri og Sanchez Emilson Cribari voru einnig keyptir. Á einu bretti hefur Udinese því nánast gert út um vonir Empoli að komast aftur upp í Seríu-A þetta tímabil.
