Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 31. ágúst 2021 16:06
Elvar Geir Magnússon
Berahino til Sheffield Wednesday (Staðfest)
Saido Berahino.
Saido Berahino.
Mynd: Getty Images
Sheffield Wednesday, sem er í öðru sæti ensku C-deildarinnar, hefur fengið sóknarmanninn Saido Berahino frá belgíska liðinu Zulte Waregem.

Berahino er 28 ára og hefur verið tvö síðustu tímabil í belgísku deildinni, fyrst með Charleroi.

Hann er fyrrum leikmaður West Brom og Stoke en hjá West Brom starfaði hann með Darren Moore sem er nú knattspyrnustjóri Sheffield Wednesday.

Í tilkynningu frá miðvikudagsliðinu er ekkert gefið upp um kaupverð né samningslengd.
Athugasemdir
banner
banner