Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 31. ágúst 2021 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Neuer: Þurfum að sýna hungur og vilja
Mynd: Getty Images
Þýskaland er með okkur Íslendingum í J riðli í undankeppni HM. Þjóðverjar mæta Liechtenstein á fimmtudaginn, Armeníu á sunnudaginn og Íslandi á þriðjudaginn á Laugardalsvelli í næstu viku.

Þýskaland tapaði gegn Englandi í 16 liða úrslitum EM í sumar en Hansi Flick tók við af Joachim Löw eftir mótið.

Manuel Neuer markvörður og fyrirliði þýska landsliðsins ræddi við þýska fjölmiðla um Flick og leikina sem framundan eru.

„Flick er mjög opinn við leikmennina og sýnir þeim mikinn áhuga. Ég held að okkur öllum hlakki til að vinna með nýja þjálfarateyminu," sagði Neuer.

„Við vitum að við þurfum að bæta okkur. Við viljum byrja vel með nýju þjálfarateymi og vinna okkur sæti á HM. Við erum mótiveraðir í að vinna þessa þrjá leiki sem framundan eru. Við þurfum að sýna hungur og vilja til að ná sem bestu úrslitum sem lið."

Þýskaland er í þriðja sæti riðilsins eftir þrjá leiki með sex stig. Ísland er í 5. sæti með þrjú stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner