Þórhallur Siggeirsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hóp fyrir fyrstu umferð undankeppni EM 2025.
Riðillinn fer fram í Moldóvu dagana 10.-20. nóvember og er Ísland í riðli með Moldóvu, Írlandi og Aserbaídsjan.
Sjö leikmenn í hópnum eru á mála hjá erlendum félagsliðum. Þar á meðal er Viktor Nói Viðarsson sonur Arnars Þórs Viðarssonar en það vekur athygli. Hann hefur leikið fyrir U17 landslið Belgíu og Arnar sagði á fréttamannafundi 2022 að hann væri belgískur.

Hópurinn
Bjarki Hauksson - Stjarnan
Birnir Breki Burknason - HK
Breki Baldursson - Esbjerg fB
Daði Berg Jónsson - Víkingur R.
Daníel Ingi Jóhannesson - FC Nordsjælland
Daníel Tristan Guðjohnsen - Malmö FF
Davíð Helgi Aronsson - Víkingur R.
Galdur Guðmundsson - FC Köbenhavn
Ívar Arnbro Þórhallsson - Höttur
Jón Arnar Sigurðsson - KR
Jón Sölvi Símonarson - Breiðablik
Kjartan Már Kjartansson - Stjarnan
Nóel Atli Arnórsson - AaB
Sesar Örn Harðarson - Selfoss
Sölvi Stefánsson - AGF
Stefán Gísli Stefánsson - Fylkir
Stígur Diljan Þórðarson - US Triestina
Viktor Nói Viðarsson - KAA Gent
Þorri Stefán Þorbjörnsson - Fram
Athugasemdir