Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   þri 28. ágúst 2012 17:30
Elvar Geir Magnússon
Bestur í 2. deild: Dæma alltaf vitlaust í báðar áttir
Leikmaður 18. umferðar: Hafþór Mar Aðalgeirsson (Völsungur)
Hafþór Mar Aðalgeirsson.
Hafþór Mar Aðalgeirsson.
Mynd: 640.is
Hafþór Mar í leiknum á laugardag.
Hafþór Mar í leiknum á laugardag.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Ég kann ekki neitt í þýsku en maður bjargar sér," segir Hafþór Mar Aðalgeirsson, leikmaður Völsungs, en Fótbolti,net truflaði hann í miðjum þýskutíma í morgun. Hafþór er leikmaður umferðarinnar í 2. deild enda skoraði hann bæði mörkin í 2-0 sigri á KV í toppslagnum.

„Fyrra markið var þannig að það kom fastur bolti á fjær frá vinstri, ég mætti og bara bombaði honum í netið. Svo var hornspyrna í uppbótartíma og ég náði að stökkva manna hæst."

Völsungur er nú þremur stigum á undan KV og HK sem koma í næstu sætum.

„Þetta var nauðsynlegur sigur," segir Hafþór en leikmenn KV voru ekki sáttir við dómgæsluna í leiknum.

„Mér finnst dómararnir í þessari deild alltaf dæma vitlaust í báðar áttir. Það hallaði ekkert á annað liðið og mér fannst dómarinn ekki gera vitleysu í þessum leik. Dómgæslan í 2. deildinni er ekkert sérstök yfir höfuð."

„Mér fannst við allan tímann hafa yfirburði í leiknum. KV hélt boltanum vel en skapaði fá færi. Við héldum vel í vörninni og sóttum hratt á þá. Í seinni hálfleik vorum við alveg með yfirhöndina og bara spurningin hvenær markið kæmi."

Völsungur er í bílstjórasætinu en Hafþór segir að menn séu þó ekki byrjaðir að fagna á Húsavík.

„Við erum ekki byrjaðir að fagna. Það eru erfiðir leikir eftir og við erum með fókus á verkefninu. Það er ekkert gefins í þessari deild og við þurfum bara að halda áfram til að ná markmiði okkar og komast upp."

Hafþór segir að Völsungur eigi heima í 1. deildinni en fyrir tímabilið var liðinu spáð miðjumoði.

„Í vetur vorum við ekki með allan mannskapinn okkar, það var ekki allt liðið saman. Þá gekk okkur illa en ákváðum að rífa okkur upp úr því."

Sjá einnig:
Leikmaður 17. umferðar - Beitir Ólafsson (HK)
Leikmaður 16. umferðar - Halldór Fannar Júlíusson (Völsungur)
Leikmaður 15. umferðar - Björn Metúsalem Aðalsteinsson (Hamar)
Leikmaður 14. umferðar - Davíð Birgisson (KV)
Leikmaður 13. umferðar - Nenad Zivanovic (KF)
Leikmaður 12. umferðar - Sölvi Víðisson (HK)
Leikmaður 11. umferðar - Halldór Bogason (KV)
Leikmaður 10. umferðar - Dejan Pesic (Völsungur)
Leikmaður 9. umferðar - Helgi Ármannsson (KFR)
Leikmaður 8. umferðar - Þórður Birgisson (KF)
Leikmaður 7. umferðar - Rafn Markús Vilbergsson (Njarðvík)
Leikmaður 6. umferðar - Magnús Már Einarsson (Afturelding)
Leikmaður 5. umferðar - Elvar Freyr Arnþórsson (HK)
Leikmaður 4. umferðar - Sigurjón Fannar Sigurðsson (KF)
Leikmaður 3. umferðar - Bessi Víðisson (Dalvík/Reynir)
Leikmaður 2. umferðar - Brynjar Orri Bjarnason (KV)
Leikmaður 1. umferðar - Grétar Hjartarson (Reynir)
Athugasemdir
banner
banner
banner