Tel vill helst fara til Man Utd - Annað tilboð í Mitoma - Watkins opinn fyrir Arsenal
   mán 23. júlí 2012 17:15
Elvar Geir Magnússon
Bestur í 2. deild: Hélt að hann myndi hrauna yfir okkur
Leikmaður 12. umferðar: Sölvi Víðisson (HK)
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
„Við höfum sýnt það í tveimur síðustu leikjum að við erum besta liðið í þessari deild þegar við spilum almennilega. Ef við byggjum á þeim þá erum við að fara að vinna þessa deild," segir Sölvi Víðisson, leikmaður HK.

Sölvi skoraði þrennu á föstudagskvöld þegar HK vann 3-1 sigur á Reyni Sandgerði og er hann leikmaður umferðarinnar.

HK var undir í hálfleik en var miklu betra liðið í þeim síðari. Sölvi segir að Ragnar Gíslason, þjálfari liðsins, hafi verið mjög jákvæður í hálfleiknum.

„Hann hrósaði okkur bara. Ég hélt að hann myndi hrauna yfir okkur því hann gerði það á móti Aftureldingu þegar við höfðum spilað okkar besta fyrri hálfleik á tímabilinu. Hann sagði bara að við værum búnir að vera sterkari í leiknum og við þyftum bara eina sókn og þá væri þetta orðið jafnt," segir Sölvi.

HK hefur unnið mjög sterka sigra í tveimur síðustu leikjum sem voru úrslitaleikir til að halda liðinu í toppbaráttunni. HK-ingar eru nú þremur stigum frá toppsætinu.

„Að okkar mati erum við langbesta liðið í þessari deild. Þegar við mætum með hausinn rétt stilltan í leiki getum við unnið öll þessi lið. HK á náttúrulega ekki heima í 2. deild og það er ekkert annað sem kemur til greina en að fara upp."

HK féll úr 1. deildinni í fyrra og hafa orðið miklar breytingar á leikmannahópnum.

„Við erum með mjög stóran hóp og það hefur verið mikið um „róteringar". Fyrst núna er kominn stöðugleiki."

Farid Abdel-Zato Arouna hefur verið feykilega öflugur hjá HK og fær mikið hrós frá Sölva „Hann er ógeðslega góður. Það vantar aðeins upp á samskiptin þar sem hann talar ekki sama tungumál en hann hefur verið rosalega öflugur."

Næsti leikur HK er útileikur gegn Dalvík/Reyni. „Það er síðasta langa ferðalagið okkar, þá erum við búnir að klára þessa erfiðu útileiki," segir Sölvi Víðisson.

Sjá einnig:
Leikmaður 11. umferðar - Halldór Bogason (KV)
Leikmaður 10. umferðar - Dejan Pesic (Völsungur)
Leikmaður 9. umferðar - Helgi Ármannsson (KFR)
Leikmaður 8. umferðar - Þórður Birgisson (KF)
Leikmaður 7. umferðar - Rafn Markús Vilbergsson (Njarðvík)
Leikmaður 6. umferðar - Magnús Már Einarsson (Afturelding)
Leikmaður 5. umferðar - Elvar Freyr Arnþórsson (HK)
Leikmaður 4. umferðar - Sigurjón Fannar Sigurðsson (KF)
Leikmaður 3. umferðar - Bessi Víðisson (Dalvík/Reyni)
Leikmaður 2. umferðar - Brynjar Orri Bjarnason (KV)
Leikmaður 1. umferðar - Grétar Hjartarson (Reynir)
Athugasemdir
banner
banner