Tel vill helst fara til Man Utd - Annað tilboð í Mitoma - Watkins opinn fyrir Arsenal
   mán 02. júlí 2012 17:30
Elvar Geir Magnússon
Bestur í 2. deild: Maður vill skora í hverjum leik
Leikmaður 8. umferðar: Þórður Birgisson (KF)
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Úr því sem komið var þá var stigið kærkomið," segir Þórður Birgisson, framherjinn öflugi hjá KF, sem skoraði jöfnunarmark gegn HK í uppbótartíma.

Þórður skoraði bæði mörk KF í leiknum en hann endaði með jafntefli 2-2.

„Fyrir leikinn ætluðum við okkur að taka stigin þrjú og fengum færin til þess. Við vorum talsvert hættulegri en þeir og sköpuðum okkur betri færi. Við hefðum átt að skora þrjú til fjögur mörk í viðbót."

„Þeir héldu boltanum meira í leiknum en þannig lögðum við upp með það. Þeir voru mjög lítið að skapa sér."

Þórður er leikmaður umferðarinnar í 2. deild en KF er í fjórða sæti. Líkt og í fyrra er deildin verulega jöfn. Aðeins þrjú stig eru upp í efsta sætið hjá KF en einnig eru þrjú stig niður í níunda sætið.

Ekkert lið að fara að stinga af
„Þetta er að spilast svipað og í fyrra. Deildin er mjög jöfn. Samt vill ég meina það séu fleiri sterkari lið núna en í fyrra. Liðin hafa styrkt sig og deildin töluvertari sterkari en í fyrra," segir Þórður.

„Ég held að ekkert lið sé að fara að stinga af. Ég býst við að þetta verði hörð barátta alveg fram í síðasta leik, það er mín tilfinning. Langflest liðin geta hirt stig af hvort öðru og þetta verður spennandi."

Þórður er nú markahæstur í deildinni en hann hefur skorað sjö mörk.

„Ég setti mér ekkert ákveðið markmið fyrir tímabil. Sem framherji vill maður skora í hverjum leik. Það er kannski ekki raunhæft en maður reynir að skora eins mikið og maður getur. Ég held að það sé ekkert hollt að hugsa of mikið um það hvað maður hefur skorað mörg mörk," segir hann.

Næsti leikur KF er á miðvikudag í Njarðvík.

„Það leggst mjög vel í mig. Allt liðið er í fínu standi og það er alltaf erfitt að spila á Suðurnesjunum. Ég man ekki eftir auðveldum leik á móti Njarðvík," segir Þórður Birgisson.

Sjá einnig:
Leikmaður 7. umferðar - Rafn Markús Vilbergsson (Njarðvík)
Leikmaður 6. umferðar - Magnús Már Einarsson (Afturelding)
Leikmaður 5. umferðar - Elvar Freyr Arnþórsson (HK)
Leikmaður 4. umferðar - Sigurjón Fannar Sigurðsson (KF)
Leikmaður 3. umferðar - Bessi Víðisson (Dalvík/Reyni)
Leikmaður 2. umferðar - Brynjar Orri Bjarnason (KV)
Leikmaður 1. umferðar - Grétar Hjartarson (Reynir)
Athugasemdir
banner
banner
banner