Tel vill helst fara til Man Utd - Annað tilboð í Mitoma - Watkins opinn fyrir Arsenal
   mán 21. maí 2012 17:30
Elvar Geir Magnússon
Bestur í 2. deild: Nýti tækifærið meðan Gunni er í burtu
Leikmaður 2. umferðar: Brynjar Orri Bjarnason (KV)
Mynd: Aðsend mynd
Brynjar Orri Bjarnason var allt í öllu í sóknarleik KV sem vann glæsilegan 4-1 sigur á Fjarðabyggð í 2. umferð 2. deildar um helgina. Talað er um að hann hafi þar leikið sinn besta leik í búningi KV.

„Já ég er ekki frá því að það geti mögulega passað," segir Brynjar sem skoraði tvö af mörkunum í leiknum.

„Maður verður að nýta tækifærið upp á topp meðan Gunni (Gunnar Kristjánsson) er í burtu."

Gunnar er erlendis og snýr aftur í fjórðu umferð. KV er nýliði í deildinni en hefur gríðarlega öflugan leikmannahóp og hefur unnið báða leiki sína til þessa.

„Við strákarnir í liðinu höfum trú á þessu og það hjálpar. Við erum flestir aldir upp við það að vera sigurvegarar og það hjálpar líka. Mórallinn í liðinu er mjög góður, það eru allir mjög góðir vinir og eru á svipuðum aldri."

„Við höfum ekki neina reynslubolta og því mikilvægt að halda okkur frá mótlætinu. Það er því gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að ná góðri byrjun," segir Brynjar Orri.

„Stefnan hjá okkur er sett á að vera í toppbaráttunni, það þýðir ekkert annað. Ég veit eiginlega ekki neitt um þessi lið í 2. deildinni. Liðin sem við höfum spilað við úr höfuðborgarsvæðinu eru öll góð og svo veit ég ekkert um liðin úti á landi. Ég held að þetta verði einhver 5-6 liða pakki þarna á toppnum."

KV fær HK í heimsókn í næstu umferð sem verður á föstudag. Þessi lið mættust í bikarnum þar sem HK vann í framlengdum leik.

„Við bíðum bara spenntir eftir þeim leik. Við eigum harma að hefna úr bikarkeppninni. Það var mikið jafnræði í þeim leik en HK-menn áttu framlenginguna," segir Brynjar Orri.

Sjá einnig:
Leikmaður 1. umferðar - Grétar Hjartarson (Reynir)
Athugasemdir
banner
banner
banner