Leikmaður 7. umferðar: Rafn Markús Vilbergsson (Njarðvík)
„Við vorum hreinlega slakir í fyrri hálfleik. Við vorum bara í eltingaleik," segir Rafn Markús Vilbergsson, leikmaður Njarðvíkur. Hann er leikmaður umferðarinnar í 2. deild eftir 3-1 útisigur gegn HK í síðustu viku.
„Við héldum þetta út. Við fengum á okkur mark strax á fyrstu mínútu og þeir fengu dauðafæri hálfri mínútu síðar. Svo náðum við að jafna úr víti undir lok hálfleiksins og það var mikilvægt að ná því. Við áttum það í raun ekki skilið að staðan væri jöfn í hálfleik."
Rafn skoraði sjálfur úr vítinu og staðan var 1-1 í leikhléi.
„Við breyttum aðeins um skipulag í hálfleiknum og lokuðum vörninni betur. Þá náðum við inn góðum mörkum í seinni hálfleik. Þetta var því þannig séð varnarsigur hjá liðinu í seinni hálfleik eftir að hafa spilað illa í þeim fyrri."
Skoruðu 63 mörk í fyrra
Eftir erfiða byrjun á mótinu hefur Njarðvík verið að finna taktinn betur og er nú í sjötta sæti, fimm stigum frá efsta sætinu.
„Deildin er jöfn en ég held að eftir nokkrar umferðir fari lið að skera sig úr. Það er reyndar minna skorað í leikjunum en í fyrra. Ég held að menn séu farnir að spá meira í varnarleiknum. Í fyrra skoruðum við 63 mörk en fórum ekki upp, það er fáránlegt."
„Við höfum fengið á okkur tvö mörk í síðustu fjórum leikjum. Þetta er allt að koma. Við lentum í því fyrir mótið að við misstum 3-4 menn í meiðsli eftir 10-1 sigur gegn Kjalnesingum í bikarnum. Þar á meðal Andra Fannar (Freysson) sem var okkar besti maður í fyrra og svo Árna Ármansson sem er fyrirliðinn okkar."
„Þjálfarinn þurfti því eiginlega að byrja nýtt undirbúningstímabil í upphafi tímabils og það varð okkur aðeins að falli í byrjun. Í síðustu leikjum höfum við náð að stilla upp því liði sem við viljum stilla upp," segir Rafn Markús.
„Við erum vanir því að vera á rokkinu upp og niður og það kemur ekkert annað til greina en að vera í toppbaráttunni. Það er draumur félagsins núna að ná að festa okkur í 1. deildinni."
Sjá einnig:
Leikmaður 6. umferðar - Magnús Már Einarsson (Afturelding)
Leikmaður 5. umferðar - Elvar Freyr Arnþórsson (HK)
Leikmaður 4. umferðar - Sigurjón Fannar Sigurðsson (KF)
Leikmaður 3. umferðar - Bessi Víðisson (Dalvík/Reyni)
Leikmaður 2. umferðar - Brynjar Orri Bjarnason (KV)
Leikmaður 1. umferðar - Grétar Hjartarson (Reynir)
Athugasemdir