Leikmaður 14. umferðar: Davíð Birgisson (KV)
„Við höfum örugglega ekki náð betra spili í sumar." segir Davíð Birgisson, leikmaður KV, en liðið vann 4-1 sigur á HK í 14. umferð 2. deildarinnar.
„Það var orðið á götunni að önnur eins spilamennska hafi varla sést í neðri deildum á Íslandi, hvað þá 2. deildinni. En við verðum að koma okkur niður á jörðina fyrir næsta leik."
Davíð er leikmaður umferðarinnar fyrir sína frammistöðu en hann lék HK-inga oft sundur og saman í leiknum og setti eitt mark.
„Það var orðið á götunni að önnur eins spilamennska hafi varla sést í neðri deildum á Íslandi, hvað þá 2. deildinni. En við verðum að koma okkur niður á jörðina fyrir næsta leik."
Davíð er leikmaður umferðarinnar fyrir sína frammistöðu en hann lék HK-inga oft sundur og saman í leiknum og setti eitt mark.
Gott að fá Jökul inn á miðjuna
Í félagaskiptaglugganum gekk Jökull I. Elísabetarson óvænt í raðir KV frá Breiðabliki og spilaði hann sinn fyrsta leik gegn HK.
„Við vorum að spila gegn sterku liði sem hafði verið á góðu skriði. Það var gott að fá góðan liðsstyrk og þrátt fyrir að hann hafði bara farið á eina æfingu með liðinu var eins og allir í liðinu spiluðu betur. Það var mjög gott að fá hann inn á miðjuna."
KV er að mestu skipað leikmönnum sem léku með KR í yngri flokkunum. Það hefur enga yngri flokka og er umgjörðin því önnur en hjá öðrum félögum deildarinnar.
Liðið hefur marga leikmenn með reynslu úr efri deildum og yngri landsliðum og er í efsta sætinu.
Erum að missa skörð
Fjögur stig eru niður í þriðja sætið en margir eru þegar farnir að tala um að liðið sé komið með annan fótinn upp í 1. deildina.
„Maður hefur heyrt talað um það en það eru enn 8 leiki eftir. Jón Kári (Ívarsson) og Halldór Bogason hafa báðir spilað sinn síðasta leik og eru á leið erlendis. Síðan er Gunnar Kristjánsson að fara út eftir tvo leiki. Við erum að missa ákveðin skörð en við erum með fína breidd," segir Davíð.
„Miðað við sjálfstraustið í liðinu eftir fimm sigurleiki í röð þá stefnum við að sjálfsögðu á að fara upp en það á eftir að spila þessa leiki sem eru eftir. Við erum langt frá því að vera byrjaðir að fagna. "
Ekki dauðadómur að missa út æfingu
Davíð er fæddur 1990 og hefur leikið með KR og Selfossi í efstu deild. Hann segir að vissulega fái menn lausari tauminn í herbúðum.
„Það þekkja allir hvorn annan vel hjá KV og menn eru mjög tengdir. Umgjörðin er aðeins lausari en stemningin hefur alltaf verið góð. Ef menn fá lausari tauminn þá bæta þeir það upp á hinn veginn."
„Það er enginn í liðinu að þiggja laun og menn eru í vinnum. Það er enginn dauðadómur ef menn missa út eina æfingu," segir Davíð Birgisson.
Sjá einnig:
Leikmaður 13. umferðar - Nenad Zivanovic (KF)
Leikmaður 12. umferðar - Sölvi Víðisson (HK)
Leikmaður 11. umferðar - Halldór Bogason (KV)
Leikmaður 10. umferðar - Dejan Pesic (Völsungur)
Leikmaður 9. umferðar - Helgi Ármannsson (KFR)
Leikmaður 8. umferðar - Þórður Birgisson (KF)
Leikmaður 7. umferðar - Rafn Markús Vilbergsson (Njarðvík)
Leikmaður 6. umferðar - Magnús Már Einarsson (Afturelding)
Leikmaður 5. umferðar - Elvar Freyr Arnþórsson (HK)
Leikmaður 4. umferðar - Sigurjón Fannar Sigurðsson (KF)
Leikmaður 3. umferðar - Bessi Víðisson (Dalvík/Reyni)
Leikmaður 2. umferðar - Brynjar Orri Bjarnason (KV)
Leikmaður 1. umferðar - Grétar Hjartarson (Reynir)
Athugasemdir