Leikmaður 17. umferðar: Beitir Ólafsson (HK)
Beitir Ólafsson, markvörður HK, var valinn maður leiksins þegar liðið vann 1-0 sigur á Gróttu í 2. deildinni. Sigurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir HK sem er í harðri toppbaráttu og er Beitir maður umferðarinnar.
„Það var ekkert mjög mikið að gera, ég viðurkenni það alveg. En ég hélt hreinu og það er ágætt að gera það," segir Beitir. HK er stigi á eftir KV og Völsungi sem eru í efstu sætum.
„Ef við ætlum okkur að fara upp þá megum við ekki misstíga okkur. Leikirnir sem eru eftir eru úrslitaleikir fyrir okkur. Völsungur og KV leika innbyrðis á laugardaginn svo ljóst er að ef við klárum okkar leik þá verðum við í öðru af tveimur efstu sætinum."
HK á útileik gegn Njarðvík á morgun.
„Eins og þessi deild hefur spilast er hún óútreiknanleg. Það finnst mér ótrúlega gaman og skrýtið við þessa deild," segir Beitir sem hefur verið að leika sér í 3. deildinni síðustu ár en ákvað að skella sér aftur út í alvöruna.
„Gamall vinur minn og þjálfari hringdi í mig og spurði hvort ég væri ekki til í að koma með honum til Þýskalands, hann gæti kannski komið mér að á æfingum og svona. Ég ákvað að fara með honum og maður sá að þetta var ekki mjög langt frá því sem maður var að gera áður en maður hætti. Maður ákvað því að byrja aftur á fullu og sjá hvað myndi gerast."
„Það hefur gengið vel í sumar og svo varðandi framhaldið þá heldur maður áfram og reynir að færa sig ofar um deild og svona til að byrja með. Allavega meðan áhuginn er til staðar og líkaminn leyfir þá á maður að vera í þessu," segir Beitur.
Gríðarlegar breytingar urðu á leikmannahópi HK eftir að liðið féll úr 1. deildinni og telur Beitir það hörkufínan árangur að liðið sé í toppbaráttunni.
„Mér finnst það. Við erum með mikið af ungum strákum. Þegar ég kem inn í liðið þá þekki ég bara einhverja þrjá til fjóra í öllum hópnum. Þetta er rosaleg breyting frá því að við vorum í úrvalsdeildinni."
Sjá einnig:
Leikmaður 16. umferðar - Halldór Fannar Júlíusson (Völsungur)
Leikmaður 15. umferðar - Björn Metúsalem Aðalsteinsson (Hamar)
Leikmaður 14. umferðar - Davíð Birgisson (KV)
Leikmaður 13. umferðar - Nenad Zivanovic (KF)
Leikmaður 12. umferðar - Sölvi Víðisson (HK)
Leikmaður 11. umferðar - Halldór Bogason (KV)
Leikmaður 10. umferðar - Dejan Pesic (Völsungur)
Leikmaður 9. umferðar - Helgi Ármannsson (KFR)
Leikmaður 8. umferðar - Þórður Birgisson (KF)
Leikmaður 7. umferðar - Rafn Markús Vilbergsson (Njarðvík)
Leikmaður 6. umferðar - Magnús Már Einarsson (Afturelding)
Leikmaður 5. umferðar - Elvar Freyr Arnþórsson (HK)
Leikmaður 4. umferðar - Sigurjón Fannar Sigurðsson (KF)
Leikmaður 3. umferðar - Bessi Víðisson (Dalvík/Reynir)
Leikmaður 2. umferðar - Brynjar Orri Bjarnason (KV)
Leikmaður 1. umferðar - Grétar Hjartarson (Reynir)
Athugasemdir