Tel vill helst fara til Man Utd - Annað tilboð í Mitoma - Watkins opinn fyrir Arsenal
   þri 29. maí 2012 17:30
Hafliði Breiðfjörð
Bestur í 2. deild: Var eins og mella í ár
Bessi Víðisson (Dalvík/Reynir)
Bessi skorar mark með Dalvík/Reyni.
Bessi skorar mark með Dalvík/Reyni.
Mynd: Bjarni Gunnarsson
Bessi er hér fyrir miðri mynd er hann var hjá Keflavík.
Bessi er hér fyrir miðri mynd er hann var hjá Keflavík.
Mynd: Jón Örvar Arason
Hans Beck var markvörður Dalvíkur/Reynis þegar hann lést í vetur.
Hans Beck var markvörður Dalvíkur/Reynis þegar hann lést í vetur.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Bessi Víðisson, 22 ára gamall framherji Dalvíkur/Reynis er leikmaður 3. umferðar í 2. deild karla en hann átti mjög góðan leik í 2-0 sigri á Njarðvík um helgina, skoraði tvö mörk og hefði getað skorað það þriðja.

Ætla að vera 10-15 marka maður í sumar
,,Það var ágætlega hvasst og við vorum miklu betri. Þeir áttu eitt almennilegt færi í leiknum og stubbur varði það, stubbur er búinn að vera mjög góður," sagði Bessi um leikinn við Fótbolta.net í dag og vísaði þar með í Steinþór Már Auðunsson markvörð liðsins.

,,Það var vangefinn vindur. Markmennirnir gátu ekki sparkað út. Í seinni hálfleik þegar við vorum með vindi komu mörkin. Þau voru bæði eftir hornspyrnu, Gunni sendi boltann út og Ottó Hólm kom með hann fyrir og ég skallaði á fjær. Seinna markið kom líka eftir horn, Ísak Einars skaut á markið og ég potaði honum inn. Þetta verða seint sögð fallegustu mörk í heimi en mörk samt," sagði Bessi sem gat skorað þriðja markið í lokin.

,,Ég átti að skora þrennu. Ég komst einn á móti markmanni á 89. mínútu og það var maður hliðina á mér. Ég átti að senda hann en þegar maður er með tvö mörk á bakinu á 89. mínútu þeir ekki búnir að fara fram yfir miðju í hálftíma þá sendir maður ekkert boltann. Ekki ef maður ætlar að vera 10-15 marka maður í sumar. Ég fékk skammir fyrir en ég tek þær ekkert inn á mig, ég hefði verið brjálaður líka."

Þegar hráefnið er gott getur maturinn ekki klikkað
Dalvík/Reynir hefur spilað þrjá leiki í sumar, unnið Njarðvík og Fjarðabyggð en tapað fyrir HK og eru því með sex stig. ,,Við erum búnir að vera mjög góðir, við fengum náttúrulega sjö leikmenn frá Þór. Við spiluðum alla leikina á undirbúningstímabilinu með fjóra leikmenn úr 3. flokki í byrjunarliði. Við erum bara djöfull góðir sem erum fyrir í þessu liði, þegar hráefnið er gott getur maturinn ekki klikkað," bætti Bessi við en hann var heimavið að búa til salat þegar viðtalið var tekið. Þegar hann var spurður hvort Dalvík/Reynir ætli sér að vera í toppbaráttu sagði hann.

,,Ætla ekki allir að vera í toppbaráttu? Við erum ekki búnir að gefa það út en byrja ekki allir mót og ætla að vinna alla leiki? Við ætlum okkur það."

Orðinn heill núna og er bara bestur
Bessi er uppalinn á Dalvík en var á tímabili með Keflavík og fór svo þaðan í Fjarðabyggð áður en hann sneri aftur heim.

,,Ég lenti í áfalli 2010 í Keflavík þegar ég reif lærvöðvann og var eins og mella í ár eftir það. Loksins þegar ég var að fá sénsinn í Keflavík. Svo fór ég austur og sjúkraþjálfarinn þar var að hjálpa mér mikið, en ég var bara eins og mella og komst ekki á lappirnar. Ég fór bara heim því það var samningsvandamál en svo er ég orðinn heill núna og er bara bestur. Það er bara þannig. Ég er hjá Dalvík núna og líður bara vel, en ég er ekkert að fela það að ég ætla mér stóra hluti. En ef síminn hringir ekki þá fer ég ekki neitt."

Markmannstreyjan óhreyfð á snaganum
Dalvík/Reynir varð fyrir áfalli í mars þegar Hans Beck markvörður liðsins lést í bílslysi.

,,Þetta var áfall, maður gerði sér ekki grein fyrir þessu. Daginn eftir kom ég á fund og þá mættu allir leikmenn og allir aðstandendur liðsins. Þá var þögn í fimm mínútur. Þetta var eitt það erfiðasta sem ég hef þurft að gera á ævinni."

,,Við héldum svo sjávarréttakvöld og létum allan ágóðann renna til ekkjunnar. Svo höfum við sett markmannstreyju á snagann hans í klefann og hún er enn óhreyfð þar. Það var fallega að þessu staðið, þetta var fínn strákur og hræðilegt að missa hann."

Athugasemdir
banner
banner