Leikmaður 5. umferðar: Elvar Freyr Arnþórsson (HK)
HK-ingar eru einu stigi frá 2. sæti 2. deildar eftir öruggan 5-2 útisigur gegn Fjarðabyggð á laugardag. Elvar Freyr Arnþórsson var í miklu stuði, var duglegur að koma sér í færi og endaði með því að setja þrennu.
„Ég fékk nokkur færi í viðbót eins og gengur, en ég var mjög sáttur við þrjú," segir Elvar sem er leikmaður 5. umferðar í 2. deildinni.
„Við tókum skemmtilegt 19 manna flug beint frá Reykjavík. Ég er svolítið flughræddur en þetta hafðist. Ég náði að hrista af mér flughræðsluna í leiknum sjálfum."
„Við bara mættum mjög einbeittir til leiks og gáfum þeim aldrei færi í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik þá náðum við bara að halda áfram og kláruðum leikinn mjög snemma í seinni hálfleik."
Getur margt jákvætt gerst í sumar
Í fyrra skoraði Elvar eins og enginn væri morgundagurinn fyrir Augnablik í 3. deildinni en færði sig svo til í Kópavoginum og steig skrefið upp í HK.
„Mér líður mjög vel. Ég er gamall HK-ingur. Stemningin í hópnum er mjög góð. Við höfum ekki mikla reynslu en það eru margir ungir og graðir menn eins og Biggi (Birgir Ólafur Helgason) og Sölvi (Sölvi Víðisson). Þeir eru mjög ungir og graðir."
„Það getur margt jákvætt gerst í sumar ef menn halda ótrauðir áfram," segir Elvar en markmið HK í sumar eru skýr.
„Við stefnum að sjálfsögðu á að fara upp. Það þýðir ekki að stefna lægra. Við höfum gæðin fótboltalega í það en þetta er spurning með reynsluna og hvar hausinn er á mönnum. Það þarf að hafa fyrir hlutunum."
Kunna 2. deildar-taflið
Sumarið 2010 spilaði Elvar með Gróttu í 1. deildinni en HK heimsækir einmitt Gróttu í næsta leik sem fram fer á föstudag.
„Það verður stórleikur. Gróttumenn eru vanir þessari baráttu í 2. deildinni. Þeir náðu í fyrsta skipti að halda sér uppi í 1. deildinni þegar ég var með þeim. Þeir kunna þetta 2. deildar-tafl alveg," segir Elvar Freyr.
Sjá einnig:
Leikmaður 4. umferðar - Sigurjón Fannar Sigurðsson (KF)
Leikmaður 3. umferðar - Bessi Víðisson (Dalvík/Reyni)
Leikmaður 2. umferðar - Brynjar Orri Bjarnason (KV)
Leikmaður 1. umferðar - Grétar Hjartarson (Reynir)
Athugasemdir