Leikmaður 1. umferðar: Grétar Hjartarson (Reynir)
„Maður á eftir að komast í betra stand þegar líða fer á sumarið," segir Grétar Ólafur Hjartarson, leikmaður Reynis Sandgerði, sem er leikmaður 1. umferðar í 2. deild karla.
Þessi reyndi markahrókur var gulls ígildi fyrir Reynismenn sem unnu 2-1 sigur á HK. Grétar skoraði bæði mörk Reynis sem komst í 2-0 í leiknum áður en Kópavogsliðið minnkaði muninn.
Þessi reyndi markahrókur var gulls ígildi fyrir Reynismenn sem unnu 2-1 sigur á HK. Grétar skoraði bæði mörk Reynis sem komst í 2-0 í leiknum áður en Kópavogsliðið minnkaði muninn.
„Þetta var hörkuleikur, HK er með fínt lið og frábært að fá að byrja á móti þeim. Það var frábært að vinna og ekki skemmdi fyrir að setja tvö."
„Svo eigum við leik gegn Njarðvík í næstu umferð og það er bara gaman."
„Ég hlakka til að mæta Njarðvík. Það er alltaf gaman að spila derby-leikina. Þetta verður erfiður leikur því þeir eru með mjög gott lið."
Grétar segir að stemningin fyrir tímabilinu í Sandgerði sé mjög góð.
„Það er alltaf spenningur fyrir fótboltanum í Sandgerði. Reynir er hörkuklúbbur með frábæra umgjörð og grasvöllurinn einn sá besti á landinu og gaman að spila þarna," segir Grétar.
Meiðsli settu strik í reikninginn hjá þessum 33 ára gamla leikmanni síðasta sumar en hann skoraði eitt mark í sjö leikjum í Pepsi-deildinni með Keflavík. Hann hefur skorað fjölmörg mörk í efstu deild en hann hefur spilað með Grindavík og KR og einnig hefur hann spilað í Noregi.
Fyrir þetta tímabil kom hann aftur heim í uppeldisfélag sitt Reyni.
Reynismönnum var spáð fimmta sæti deildarinnar af þjálfurum og fyrirliðum en þjálfarinn Jens Elvar Sævarsson sagði í viðtali fyrir mót að stefnan væri sett hærra en það
„Við sem stöndum að þessu og leikmenn teljum að það búi meira í liðinu en að enda í fimmta sæti. Við erum brattir," sagði Jens Elvar.
Athugasemdir