Leikmaður 13. umferðar: Nenad Zivanovic (KF)
Margir muna eftir Serbanum Nenad Zivanovic sem lék með Breiðabliki í efstu deild fyrir nokkrum árum. Í dag er hann 36 ára og leikur með KF í 2. deildinni.
KF er eitt margra liða sem á möguleika á að fara upp úr deildinni en í síðustu umferð vann liðið glæsilegan 3-1 útisigur á Aftureldingu. Nenad skoraði tvö mörk í leiknum og er leikmaður umferðarinnar fyrir frammistöðu sína í leiknum.
KF er eitt margra liða sem á möguleika á að fara upp úr deildinni en í síðustu umferð vann liðið glæsilegan 3-1 útisigur á Aftureldingu. Nenad skoraði tvö mörk í leiknum og er leikmaður umferðarinnar fyrir frammistöðu sína í leiknum.
„Ég er mjög ánægður með hvernig við spiluðum gegn Aftureldingu, það var ekki veikan blett að finna. Ég hafði það á tilfinningunni strax í upphitun að við myndum vinna leikinn," segir Nenad.
„Liðið lék sinn besta leik síðan ég kom til þess. Afturelding fékk úr litlu að moða. Ég held að þeir hafi fengið nokkur hálffæri fyrir utan markið sem þeir skoruðu. Á móti sköpuðum við mörg færi og hefðum vel getað skorað meira."
Nýtur lífsins á Íslandi
Nenad er ánægður með lífið hjá KF.
„Mér hefur liðið vel hjá öllum þremur félögunum sem ég hef spilað með á Íslandi, líka hjá Breiðabliki og Þór. Ég er á þeirri skoðun að leikmenn sem eru opnir og vingjarnlegir geti passað auðveldlega inn í íslensk lið."
Hann segist hafa gengið í raðir KF í kjölfar þess að Lárus Orri Sigurðsson hafði samband við sig. „Lárus var þjálfarinn minn hjá Þór og hann vildi fá mig. Þegar hann gerði þriðju tilraunina til þess að fá mig til KF gat ég ekki sagt nei. Maður getur ekki sagt þrisvar nei við svona stórt nafn í íslenskum fótbolta," segir Nenad Zivanovic.
„Ég nýt lífsins á Íslandi. Þetta er frábært land á marga vegu. Sérstaklega fyrir vatnið og hreina loftið. Ég aðhyllist heilbrigðu líferni og þar með er Ísland fullkominn staður til að búa á."
Skiljum hvorn annan vel
Hann hefur náð vel saman með sóknarmanninum Þórði Birgissyni sem skorað hefur níu mörk í deildinni í sumar.
„Þegar lið spila með tvo leikmenn saman frammi er mjög gott að hafa þá ólíka. Þórður er sterkur, hraður og góður í loftinu. Hann er mjög beinskeyttur leikmaður. Minn leikstíll er öðruvísi. Ég vill halda boltanum og bera hann uppi og skapa færi fyrir aðra. Í byrjun var hann að skora og ég að leggja upp en nú höfum við skipt um hlutverk. Hann er að skapa færi fyrir mig og leggja upp. Við skiljum hvorn annan vel á vellinum og það hefur verið ánægja að spila með honum."
Nenad Zivanovic býst við spennu í lokabaráttu 2. deildar. „Deildin er jöfn og allir geta unnið alla. Ég ætla að forðast það að spá einhverju en ég tel að sex efstu liðin eiga enn möguleika á því að fara upp."
Sjá einnig:
Leikmaður 12. umferðar - Sölvi Víðisson (HK)
Leikmaður 11. umferðar - Halldór Bogason (KV)
Leikmaður 10. umferðar - Dejan Pesic (Völsungur)
Leikmaður 9. umferðar - Helgi Ármannsson (KFR)
Leikmaður 8. umferðar - Þórður Birgisson (KF)
Leikmaður 7. umferðar - Rafn Markús Vilbergsson (Njarðvík)
Leikmaður 6. umferðar - Magnús Már Einarsson (Afturelding)
Leikmaður 5. umferðar - Elvar Freyr Arnþórsson (HK)
Leikmaður 4. umferðar - Sigurjón Fannar Sigurðsson (KF)
Leikmaður 3. umferðar - Bessi Víðisson (Dalvík/Reyni)
Leikmaður 2. umferðar - Brynjar Orri Bjarnason (KV)
Leikmaður 1. umferðar - Grétar Hjartarson (Reynir)
Athugasemdir